Nenni ekki
þessi síða sé að syngja sitt
síðasta!!!
Snjór og gaman
Ég hef aldrei í mínu lífi kynnst eins furðulegum hundi. Hún vill helst skríða upp í fangið á mér til að sofna og á næturnar sefur hún í rúminu sínu á gólfinu við hliðina á mér, ef hún vaknar þá vill hún að ég leggi lófann í rúmmið hennar svo hún geti sofnað á honum. Snuðin hennar Aþenu eru ekki lengur snuðin hennar því Rósa er búin að hertaka þau. Kannski bara gott að Aþena notar þau ekki til að sjúga hehe. Annars er gott að frétta úr sveitinni. Komin smá jólaspenna í mig og kvartaði ég í bankanum um daginn að það var ekki búið að skipta brjóstsykrunum út fyrir piparkökur. Ég held að það sé málið að kaupa bara nokkrar, svona til að að fá smá jólabragð í munninn.
Mikil spenna
Ég set myndir inn á morgun á barnanetið.
Komin heim
Árshátíðin sjálf var haldin í Gullhömrum í Grafarholti. Svaka flottur staður. Það átti að vera hollywood óskarsverðlaunaþema. Voða fínt eitthvað og þegar við komium þá var rauður dregill og svaka ljós úti. Simmi og Jói tóku svo á móti öllum með camerur og tóku viðtöl við nokkra sem komu inn.
Þegar upp var komið var stórt tjald þar sem hægt var að fylgjast með því sem Simmi og Jói voru að gera.
Þegar við fengum að setjast var pínu bið í matinn, við fengum í forrétt sjávarrétta eitthvað og í aðalrétt var bambi. Vá hvað hann var góður. Svo var súkkulaðimús og ís í eftirrétt.
Skemmtiatriðin voru æði. Simmi og Jói voru kynnar allt kvöldið og Raggi Bjarna kom og þvílíkt sem hann náði stemmningunni upp. Ljótu hákfvitarnir spiluðu líka nokkur lög, þeir eru alger snilld. Svo var ball með Á móti sól. En það var líka stuttmyndakeppni og óskarsverðlaun fyrir frammistöðu í þeim .
Sem sagt algert æði.
Daginn eftir var vaknað snemma og náð í krakkana og brunað á Geysir. Þar vorum við að skoða hvolpa sem okkur langar í. Við fengum að borða á hlaðborðinu á hótel Geysi, namm. og svo spjölluðum við heillengi við eigendur hundanna.
Svo þurftum við að bruna í bæinn til að ná í flug og við vörum að koma heim í kot um hálf 9 held ég.
Æðisleg helgi. ég er samt ekki enn búin að ganga frá úr ferðatöskunni. Ef allt gengur vel þá fáum við hvolp til okkar á föstudagsnótt þegar Snorri er að koma heim úr vinnunni. Ég hlakka til að takast á við það, við erum búin að bíða svo lengi eftir þessu.
Meira síðar
Djamm í reykjavík
Sjúkrahússaga
Ég er farin að halda það að Snorri ætli að prufa að leggjast inn á öll sjúkrahús í landinu. Hann datt á hausinn í gær og rotaðist. Ekki í fyrsta skiptið sem hann dettur í vinnunni. Eníhú, þá þurfti að senda hann með sjúkrabíl og alles og hafa hann yfir nótt því hann fékk heilshristing. Ég náði svo í hann í hádeginu. Ég vona að hann fari að hætta þessu því þetta er aðeins of algengt fyrir minn smekk. annasr ætlum við að reyna koma á morgun en ekki á laugardag eins og planið var. Sjáum hvernig gengur með það.
Mánudagur til mćđu
Ég er farin að hlakka til næstu helgi. Ég er örugglega búin að setja það hérna inn áður. Ég get bara ekkert að því gert, ég hlakka bara til. Fyrsta nóttin án Aþenu. Það verður erftirr en rosalega gott.
Ég hef ekkert meira segja
Laugardagur
Ég held bara svei mér þá að ég sé farin að hlakka pínu til jólanna. Silla var að tala um að fara norðurleiðina heim og koma við í jólahúsinu. Þá áttaðu ég mig á því að það er ekki svo langt til jólanna. Aþena verður 1 árs og Bernó sæti er að koma til landsins og verður yfir jólin og að ég held líka áramót, gaman það.
Næstu helgi er ég að fara í bæinn. Við fljúgum á laugardag um 2 og til baka á sunnudag. Við erum að fara á ættarmót en ætlum líka að reyna fara upp á geysi og kíkja í smá heimsókn áður en við fljúgum til baka. Kannski fáum við góðar fréttir í leiðnni, ég vona það að minnsta kosti.
Annars er ég aðeins farin að endurskoða vinnumálin hjá mér. Aðeins að kíkja í kringum mig þar sem Aþena er að fara detta inn á leikskóla og Apotek vinnan er ekki að borga neitt sérstaklega mikið. Mig langar að fara vinna meira og auðvita spila peningamálin inn í þetta líka.
Ég fór í bíó um daginn að sjá Shotgunnstories, hefur einhver séð hana?????
Ég er búin að setja inn nýja könnun sem ég vill að ALLIR svari...
ble ble
BT sökkar
Já ég sagði það, BT sökkar. Við fengum okkur tölvu þar í byrjun ágúst og allt í góðu með það, þegar við komum heim þá tengi ég mús við tölvuna svo að það leið smá tími þar til ég varð vör við það að vinstri músartakkinn á tölvunni ´sjálfri var ekki að virka eins og hann á að gera svo að fyrir 3 vikum fór ég með hana í viðgerð. ÞAð tók 3 vikur að laga hana. Ég hringdi oft að athuga með hana og alltaf sagt við mig einhver dagsetning á því hvenær hún átti að vera komin til baka en aldrei stóðst það. Loksins í gær kom hún en hvað gerist þá. Hún virkar EKKERT. Ég gat kveikt á henni og það heirðust hljóð en skjárinn kveiknaði ekki og það var hægt að sjá að henni var ekki nægilega vel lokað þegar hún var löguð. Þetta er alger asnaskapur og ég hringi auðvitað nokkuð pirruð og kvarta yfir þessu og ég fer með tölvuna á morgun og SKILA henni. 'EG vil ekki skipta við svona lið sem hefur ekki nein samskipti á milli starfsfóks og getur ekki einu sinni skilað tölvunni almennilega samansettri aftur eftir 3 vikna viðgerð á einum takka. Og hana nú.
Út í allt annað. Aþena er búin að vera veik síðan á mánudag með einhvern vírus. Hún fékk 40,4° hita og alles. Það leit út á tímabili eins og einhver hefði kílt hana því h ún fékk svo mikla bauga. Hún er samt öll að koma til og vonandi verður hún hitalaus á morgun. Birta er að sleppa við þetta en kom samt heim úr skólanum í gær með hausverk. Kannski er þetta sama dæmið og með mig að hana fer að vanta gleraugu. Henni finnst það ekkert leiðinlegt. Hún er alltaf að byðja um að prófa mín.
Við Snorri erum að fara í bæinn þarnæstu helgi á árshátðið eða eitthvað slíkt í vinnunni hans. Við fáum hótelherbergi og alles og mamma og Rúnar ætla að passa stelpurnar eina nótt. Úff það verður skrítið að vera barnlaus en ég hlakka samt pínu til líka.
Kannski að ég nái að kíkja til Habbý í klippingu þegar ég kem í bæinn. Mig langar svo að klippa mig stutt......
Nýtt blogg
Þar sem kvartanir hafa boriðst vegna blogleusis þá verð ég að sinna því. Það sem veldur því að ég blogga ekki þessa dagana er að tölvan mín er búin að vera í viðgerð í 2 vikur, já í 2 vikur. til þess að laga einn skitinn takka á henni. Þeta er bara skammarlegt. 'Eg er búin að eiga tölvuna í´2 mánuði og það var eitthvað skrítið með annan músartakkan, hélt að það tæki smá stund að redda því en nei þeir í BT vilja halda henni í 2 vikur þar til þeir segja mér sirka hvenær tölvan er tilbúin. Við hjónin erum náttúrulega alveg að verða gaga á þessu netleysi. Þegar gamla tölvan hrundi tók það ekki nema 3 daga að fara og fá nýja því við gátum ekki meira. Ætli það sé boðið upp á að fá lánstölvu???
Við erum að leita af nýju heimili fyrir Púmba okkar. Hann er æðislegur í alla staði en hann getur bara ekki búið á annari hæð. Hann þarf að geta farið inn og út eins og hann vill. Honum líður ekki vel hjá okkur eins og er og því viljum við reyna finna góðan nýjan eiganda. Endilega athugið hvort þið getið reddað því.
Ég hef verið mjög þreitt síðustu vikur, veit ekki afhverju en ég fór í blóðprufu og er að bíða eftir að fá að vita ú því. Ég hef oft verið þreitt í smá tíma en ekki svona mikið, ég sofnaði á gólfinu heima og báðar stelpurnar að leika hjá mér og TV í gangi. Skil það ekki alveg, svo er ég að sofna um 10 á kvöldin og sef alla nóttina til 7 og enn þreitt. Ég er byrjuð að taka lýsistvennu og vona að það komi mér í gang.
Ég er að plana það að fara í smá útlandarferð eftir áramót. Kannski til London, bara að versla og leika mér. Snorri er búin að vera duglegur að fara í smá ferðir í allt sumar og nú er komin tími á mig. Vill einhver koma með??? Börn eru ekki velkomin með í þessa ferð...
Vinnan gengur vel og stelpurnar mínar eru englar. Lífið er bara ágætt hérnamegin á landinu, það er að koma vetur og það er komin smá hrollur í mig en ég er búin að fá mér flotta inniullasokka sem halda á mér hita heima og svo á ég góða kuldaskó. Svo er bara að hita kakó.....
kvitta svo
